Hestar til sölu

 

Embla frá Ásgarði - IS2007225864

Embla er undan Heilladís frá Galtanesi og Hrók frá Gíslabæ. Verð 150.000 - Innifalið í verði er örmerking og DNA-test.


Gná frá Ásgarði - IS2007225863

Gná er undan Skjónu frá Drangshlíð og Hrók frá Gíslabæ. Gná er forvitið folald og alltaf til í að skoða mannfólkið sem er að koma til að skoða hana :) Hún fer um á brokki, tölti og svo hef ég séð skeið í henni líka. Verð 150.000 - Örmerki og DNA-test innifalið.


Sága frá Ásgarði - IS2007225862

Sága er undan Halastjörnu frá Drangshlíð og Hrók frá Gíslabæ. Sága er virkilega frítt og fallega byggt folald, háfætt og myndarleg. Verð 120.000 - Innifalið í verði er örmerking og DNA-test.

Ásgarðsbúið Ingibjörg R. Ingólfsdóttir & Herbert P. GuðmundssonÁsgarðiIS - 250 Garðurherbertp@simnet.is