Halastjarna
frá Drangshlíð (IS1987284021)
Faðir:
Blesi frá Rauðsbakka
Móðir:
Litur: Brúnblesótt (halastjarna)
Halastjarna
er að gefa virkilega auðtamin hross með góða fótalyftu.
Hún er í miklum metum hér á bæ vegna geðslagsins bæði
í henni og afkvæmum hennar. Svo er faxið á henni virkilega
sítt og fallegt.
Litla-Löpp
frá Galtanesi (IS1993255002)
Faðir:
Móðir: Heilladís frá Galtanesi
Litur: Jarpsokkótt
Litla-Löpp
er ræktunarhryssa sem er að gefa fallega liti og þægileg
hross bæði í umgegni og tamningu. Yfirmáta róleg og taugasterk
hryssa.
Skjóna
frá Drangshlíð (IS1995225866)
Faðir:
Vaðall frá Oddgeirshólum II
Móðir: Villimey frá Drangshlíð
Litur: Jarpskjótt
Skjóna
er búin að vera í notkun sem mitt aðalreiðhross hér á
bæ og er prýdd þeim höfuðkostum sem ég met hvað mest í
fari reiðhrossa. Hún er taugasterk, þægilega viljug, vinkilhágeng
og fótviss með afbrigðum. Fín sem reiðhross, smalahross
og hægt að bregða sér í hringinn á minni mótum.
Villimey
frá Drangshlíð (IS19AC284590)
Litur: Jarpskjótt
Villimey
keypti ég eftir að ég tamndi dóttur hennar hana Skjónu.
Villimey er að gefa auðtamið, gott brokk, tölt og mikla
fótlyftu. Það vantar aðeins uppá bygginguna hjá henni
en í staðinn svíkja ekki hæfileikarnir hjá afkvæmum hennar
og hafa öll hennar afkvæmi áberandi flottar hreyfingar
og fótlyftu.
Kringla
frá Langholti
Faðir:
Sveipur frá Njarðvík
Móðir: Kolla frá Kópavogi
Litur: Rauðskjótt
Kringla
kemur úr Viðey og var þar í litaræktun frændanna Ragga
og Ómars. Kringla er virkilega fallega byggð, langvaxin
og samræmið gott. Hún er af gamla Tungufellskyninu úr
Lundareykjadal.
Stórstjarna
frá Ásgarði (IS2000225860)
Faðir:
Brúnblesi frá Hoftúnum
Móðir: Halastjarna frá Drangshlíð
Litur: Brúntvístjörnótt
Stórstjarna
er ótamin en geðug hryssa. Hún fékk þetta nafn þegar
að hún fæddist,hún var svo stór nýköstuð.