|
Endur
Andabúskapurinn
hér í Ásgarði byrjaði þegar að við fengum andaregg frá Strönd
í Landeyjum vorið 2003. Klöktust þau útí útungunarvél og fengum
við útúr því 13 fugla. Þetta eru skemmtilegir fuglar og afskaplega
duglegir að verpa og liggja á. Varptíminn hefst í Mars og
stundum er hörkufrost þegar að þær byrja varpið en það láta
þær ekki á sig fá. Við nýtum eggin til matar framá vorið og
setjum líka í útungunarvél. Þegar að við erum komin með nóg
af eggjum í vélina þá fá þær að liggja á í friði og ró og
koma þær upp cirka 5-9 ungum hver önd.
|