Um Ásgarð

Ásgarður er á Reykjanesi nánar tiltekið milli Garðs og Sandgerðis. 10 mínútna keyrsla er uppá Keflavíkurflugvöll (Leifs Eiríkssonar). Jörðin er 40 hektarar og liggur að Garðskagalandi. Hér búum við hjónin Herbert Pétur Guðmundsson (Hebbi) og Ingibjörg Rannveig Ingólfsdóttir (Ransý).

Fyrir 10 árum síðan keyptum við jörðina af foreldrum Herberts og fylgdu jörðinni tvær hryssur og svo leið ekki á löngu þartil að fleiri hryssur bættust við. Fljótlega fórum við að rækta hross og leggjum við mesta áheyrslu á geðprúð hross í fallegum litum. Erum við að reyna við litförótta litinn og verður það verðugt verkefni fyrir okkur að kljást við næstu árin. Svo er hér ýmislegt fleira í gangi, við erum að koma upp æðarvarpi og gengur það hægt og sígandi. Fengum friðlýsingu árið 2004 þannig að þetta er stutt á veg komið en það vantar ekki fuglinn í fjöruna hjá okkur og nú er verið að vinna í því að hæna hann inná Ásgarðslandið með ýmsum ráðum. Gerðum við tjörn handa fuglinum að busla á og þar eru líka aliendur og aligæsir svamlandi um. Ekki má vanta minkaveiðhunda þegar að verja þarf varpið og erum við með 3 tíkur og einn rakka í því hlutverki.

Einnig erum við með stærsta kanínubúið á landinu og eru í kringum 30 ræktunarlæðurá búinu og 15 högnar. Mestur fjöldinn af kanínum hefur orðið milli 300-400 dýr. Þannig að það er nóg að gera á kanínubúinu. Ekki má gleyma Íslensku Landnámshænunum sem að við ræktum og seljum í öllum regnboganslitum. Höfum við lagt áheyrslu á mikið fjaðurskraut á fótum og fallega rósakamba. Hanar frá okkur þykja vera prúðir og kurteisir í skapinu og með öllu lausir við að vera árásargjarnir.

Ásgarðsbúið Ingibjörg R. Ingólfsdóttir & Herbert P. GuðmundssonÁsgarðiIS - 250 Garðurherbertp@simnet.is